Smáratorg 1
Fljótlega losnar í kringum 82 fm verslunar-, og veitingahússrými á þessum vinsæla stað á miðju höfuðborgarsvæðinu. Á Smáratorgi er að finna fjölbreytt úrval verslana, veitingastaða og þjónustuaðaila í læknatengdri starfsemi. Urmull bílastæða allt í kring, bæði á bílaplani úti og í stórum bílakjallara. Rafhleðslustöðvar og hjólastæði eru þar til staðar og þá er lyfta úr bílakjalla með afar góðu aðgengi fyrir viðskiptavini og starfsfólk byggingar. Umrætt verslunar- og veitingahússrými hefur mikinn sýnileika frá götu og er með stórum gluggum. Smáratorg 1 var formlega opnað 1998 og hefur frá upphafi verið sterkt í verslun og þjónustu enda staðsetning frábær og er í dag miðja höfuðborgarsvæðisins.